Halló !! Fjóla heiti ég Sigrún Sigurðardóttir.
Ég var skírð í höfuð á Ömmu minn sem heitir Fjóla og svo mömmu og pabba en þau heita Sigurður
og Kristrún (Sigrún).
Ég á 2 bræður sem heita Jóhann Unnar (Jói, ´72) og Guðmundur Böðvar
(Gummi, ´75). Jói er giftur Kristínu og eru þau búin að vera saman síðan þau voru 14 þannig
hún er eins stóra systir mín. Þau eiga 2 börn Jóakim (´98) og Alexandra (´00).
Gummi býr með Þórhildi og eiga þau tvo syni Stefán (´01) og Böðvar
(´04)
Ég er fædd 5.des 1980 og er því bogamaður (besta stjörnumerkið by the way). Ég er Garðbæingur í húð og hár en er með sterkar taugar í Hrunamannahreppinn og Hafnafjörð. Pabbi
er hafnfirðingur og mamma er úr hreppnum.
Varð stúdent af málabraut frá FG í febrúar ´01
Er að vinna núna í 2 vinnum og reyna að safna pening til að geta haldið áfram námi. Það er að segja ef ég finn einhvern
skóla !!!
Mamma fór einhver tímann til spákonu sem sagði við mömmu að dóttir hennar væri með 2 fullar töskur af
hæfileikum og er ég enn að leita að þeim töskum. Var reyndar búin að finna út að ég er nokkuð góð í að þrífa hjá
mér þegar ég bjó í Danmörku og er klaufi ekki hæfileiki ????. Ég mundi segja að ég væri nokkuð róleg en samt
stundum hávær og hlæ frekar hátt hi hi hi En annars mundi ætla ég ekki að dæma hvernig ég er persónulega, það er fyrir
aðra að dæma :) og ég held að þá fari það líka eftir því hvern þú spyrð hvaða svar þú færð he he he